Spjallborð fyrir alla
Þú ert ekki skráður inn
Jæja nú er liðinn einn versti vetur í sleðakeppnum.
Enda tíð ekki ofur góð til að byrja með fyrir keppnisvæði og fleira.
Nú væri gaman að vita frá fólki hvað því fyndist um þennan vetur og hvað við þurfum að gera til að byggja þetta keppnissport aftur upp.
Aðrar áherslur í crossið, meiri spyrnu, fjallarall, samhliðabraut ??
Hvað teljið þið ??
Offline
Þetta er virkilega góð pæling Lexi, grunar að margir áhugamenn séu búnir að vera velta þessu fyrir sér.
Ég hef fylgst með sleðakeppnum hérlendis nánast síðan þær byrjuðu af einhverju viti, og þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem kemur svona "down tímabil", eins og þú veist auðvitað best manna.
Við höfum upplifað a.m.k tvö gullaldartímabil í mínum huga, tímabilið frá ca '89 til '96 var snilld, oftast stútfullir flokkar í öllum keppnisgreinum. Svo dofnaði þetta verulega og varð í raun ekki samt aftur fyrr en veturna sem Alþjóðakeppnirnar voru háðar á Ólafsfirði (gætum sagt '00 til ca '04).
Ég er ekki að segja að öll árin síðan þá hafi verið slæm, season-ið sem núna er að líða var afleitt, og var ekki '09 season-ið líka frekar slappt ?
Er það ekki bara eins með þetta og allt annað, menn þurfa að koma í þetta á breyttum forsendum, líkari því sem var í den þegar þurfti ekki nýjan sleða og allar græjur ?
Það er langt þangað til verður aftur hægt að treysta á umboðin með verulegt "spons" og það er ekki á færi allra að ná sér í styrktaraðila. Og svo auðvitað það augljósa, menn eiga minni peninga og mun erfiðara er að fjármagna þetta á lánsfé heldur en var fyrir nokkrum árum.
Það verður einhvern vegin að koma því inn hjá mönnum að þú þarft ekki að vera með allt splúnkunýtt og stífbónað til að geta verið með. Svona prímadonnu hugsun drepur allt sem er skemmtilegt og ég er reyndar þeirrar skoðunnar að hún hafi fylgt sleðasportinu alltof lengi.
Í vetur var haldin spyrna á Akureyri sem tókst merkilega vel. Áhorfendafjöldinn þar toppaði örugglega samanlagðan áhorfendafjölda á síðustu 3-4 "alvöru" sleðakeppnum. Þar var grínið í fyrirrúmi, menn komu á gömlum tuggum sem og nýrri græjum og allt small einhvern vegin saman.
Sú keppni var haldin í þéttbýli, sem er augljóslega lykillinn af því fá fólk til að mæta sem áhorfendur. Hitt er svo annað mál hvernig gengur að fá slíkt samþykkt af bæjaryfirvöldum, t.d á Akureyri og Ólafsfirði. Ég þekki því miður ekki stöðuna á því, hvort búið er að taka fyrir þetta eða hvað.
Varðandi að vekja upp fjallarall, samhliðabraut og hillcross, þá myndi ég halda að það væri góð hugmynd. Veit reyndar ekki með fjallarallið, held að það hafi kannski verið barn síns tíma, en klárlega gæti samhliðabraut virkað vel sem og hillcross. Í Hillcrossi væri t.d komin vettvangur fyrir stóra og langa sleða sem virðast vera vinsælasti varningurinn á klakanum þessi árin.
Svo er spurning hvort væri hægt að samþykkja snocross/brautarkeppni á stærri sleðum en 600cc ? 600cc sleðar, eins frábærir eins og þeir eru, fara bara að verða frekar sjaldgæfir bráðum, miklu fleiri eiga 700,800 og jafnvel stærri, heldur en 600. Þetta yrði þá spurning um hvort halda ætti keppnirnar áfram eftir alþjóðlegum stöðlum eða ekki.
Það er liðin tíð (held ég) að menn kaupi sér sleða sérstaklega fyrir snocross (ég segi þetta vegna þess að stór prósenta af sölu 600cc sleða síðustu var til keppnisstráka, líkt og 440cc sleðar voru áður). Svo ekki sé minnst á blessað race-gasið, verðlagningin á því er orðin svo útúr kortinu að það nær engri átt.
Offline
bara leyfa öllum sleðum að vera með, og ekki vera með tímatökubúnað og solleiðis rugl, bara eins og þetta var í kringum 2000
Offline
sammála síðasta ræðumanni.
Svo þarf að berja vit í einhvern hjá rúv, fá millitech motorsport aftur á skjáinn.
http://www.youtube.com/watch?v=TjoQiqY9 … re=related
Offline
Maður er nú búinn að gera sitt besta til að leyfa mönnum að upplifa Mótorsport nostalgíuna með að hlaða þessu inn á www.hrollur.is
En ég er sammála því, það væri snilld að fá þessa þætti aftur. En til þess þarf auðvitað að vera virkt sleðasport! Sem mér sýnist að sé óvíst fyrir næsta vetur.
Offline
www.hrollur.is er alveg snilld, og er búinn að halda geðheilsunni gangandi hjá okkur félögunum hérna fyrir austan. Hvernig sem fer með sjónvarpið hefur verið tekinn ákvrörðun ó herbúðum hérna
á Egilsstöðum og hún er sú að fjárfesta í hjálmvélum. 2-3 með eina saman, við erum nokkuð margir þannig að vonandi geta serverarnir hjá hrolli tekið vel við ![]()
Offline