Spjallborð fyrir alla
Þú ert ekki skráður inn
Sælir, þið fyrir norðan hvernig er útlitið á Kaldbak og Glerárdalnum fyrir næstu helgi. Held nú að Glerárdalurinn sé hálf snjólaus og leiðinlegur en mig langar bara svo norður að ég er að bíða eftir einhverjum sem talar í mig bjartsýni
Offline
Sæll.
Glerárdalurinn er nú svo sannarlega ekki snjólaus, þvert á móti yfirdrifið af snjó þar en gallinn er að uppkeyrslan sem vanalega er farinn (frá hitaveituskúrunum/ ruslahaugum) er snjólaus, en strax á mýrunum er komið nóg.
Út á Kaldbak er síðan allt á kafi eins og alltaf, en á báðum þessum stöðum er örugglega mikið hjarn.
Offline
það er sennilega farið að linast núna í þessum hlýindum, en bara keyra uppá stæði hérna og leggja í kaldbakinn og þar í kring..
Offline
jon skrifaði:
það er sennilega farið að linast núna í þessum hlýindum, en bara keyra uppá stæði hérna og leggja í kaldbakinn og þar í kring..
jæja jón nú rennum við á kaldbakinn og athugum málið. allt að verða á kafi hérna,
Offline
það hlýtur allt að vera að fara í kaf núna, það snjóar og snjóar og snjóar og snjóar og snjóar og snjóar og snjóar................................
Þannig að norðan menn geta nú farið að rífa andlitið uppúr koddanum, þurrkað tárin og farið út að leika
Offline
OOOOOOOOOOOOOOoggggg látið okkur sunnanheiðasnjóleysingjana vita af færi með myndum og sögum hér á spjallinu ......
Offline
Það var litið i sma túr á dalvik böggvinstaðafjall og kalsárdal. Ekkert skyggni á köflum vel af snjó á kalsárdal böggvinstaðaf þúfur og leiðindi her og þar alveg hægt að eiga góðann dag engasíður.
Offline
Það voru tugir manna sem fóru hér í nálæg fjöll (við Akureyri) um helgina. Það er búið að snjóa meter jafnfallinn hér í bænum og eflaust þrefalt það upp í fjöllum. 
![]()
Offline
Ég fór í dag inn á Glerárdal, skyggni lítið en þvílíkt púður og gaman. Ég fór bara rétt upp að fyrsta gili og þar var orðið c.a meters púður. Það er öruggt að það er enn meira þegar ofar kemur. Það vantaði bara skyggni í dag til að komast ofar.
Offline